22. KAFLI 🔊

Góðan daginn, sagði litli prinsinn. 🔊

Góðan daginn, sagði maðurinn sem skipti um spor hjá lestunum. 🔊

- Hvað starfar þú hér? 🔊 sagði litli prinsinn. 🔊

- Ég flokka ferðamenn í þúsundatali, sagði maðurinn. 🔊 Ég sendi lestina sem flytja þá ýmist til hægri eða til vinstri. 🔊

Og uppljómuð hraðlest sem kom með þrumugný hristi til klefann sem maðurinn var í. 🔊

- Þeim liggur víst á, sagði litli prinsinn. 🔊 hverju eru þeir leita? 🔊

- Einlestarstjórinn veit það ekki sjálfur, sagði maðurinn. 🔊

Og í öfuga átt með sama gný brunaði önnur uppljómuð hraðlest. 🔊

- Þeir koma þegar aftur? 🔊 spurði litli prinsinn. 🔊

- Það eru ekki þeir sömu, sagði maðurinn. 🔊 Það eru skipti. 🔊

- Voru þeir ekki ánægðir þar sem þeir voru? 🔊

- Maður er aldrei ánægður þar sem maður er, sagði maðurinn. 🔊

Og enn drundi þrumugnýrinn frá þriðju uppljómuðu hraðlestinni. 🔊

- Elta þeir fyrri ferðamennina? 🔊 spurði litli prinsinn. 🔊

- Þeir elta alls ekki neitt, sagði maðurinn. 🔊 Þeir eru sofandi þarna inni, eða geispandi. 🔊 Það eru aðeins börnin sem fletja nefið á rúðunum. 🔊

- Það eru aðeins börnin sem vita hverju þau eru leita, sagði litli prinsinn. 🔊 Barn leikur sér tuskubrúðu og hún verður því mjög mikils virði, og ef hún er tekin frá því fer það gráta

- Börn eru lánsöm, sagði maðurinn. 🔊