← Það er margt um manninn á torginu hjá skólanum. 🎥
← Í þriðja tjaldinu er hægt að skjóta í mark. Í fjórða tjaldinu getur maður rekið nagla í spýtu. 🎥
← Tína stendur beint fyrir framan konuna. Ungur maður kaupir 6 miða. Skömmu seinna réttir hann konunni 2 miða. 🎥
← Konan réttir manninum dúkku og kexpakka. Svo réttir hann henni einn miða enn. Hún lítur á númerið og segir: "Til hamingju! Þú vannst sófann!" 🎥
← Tína snýr sér við og hleypur af stað. Hún ætlar að segja Elsu frænku frá manninum sem fékk sófann. 🎥