Litli prinsinn fór yfir eyðimörkina og hitti aðeins fyrir eitt blóm. 🔊 Blóm með þremur blöðum, örsmátt …
- Góðan daginn, sagði litli prinsinn. 🔊
- Góðan daginn, sagði blómið. 🔊
- Hvar eru mennirnir? 🔊 spurði litli prinsinn kurteislega. 🔊
Blómið hafði einu sinni séð ferðamannalest fara hjá. 🔊
- Mennirnir? 🔊 Þeir eru til, held ég, sex eða sjö. 🔊 Ég sá þá fyrir mörgum árum. 🔊 En það er aldrei hægt að vita þá er að finna. 🔊 Vindurinn feykir þeim til. 🔊 Þá vantar rætur, það er þeim mjög bagalegt. 🔊