- Góðan daginn, sagði maðurinn. 🔊
- Góðan daginn, sagði kaupmaðurinn. 🔊
Þetta var kaupmaður sem verslaði með undrapillur sem sefa þorsta. 🔊 Menn gleypa eina á viku og finna ekki framar til þess að þurfi að drekka. 🔊
- Hvers vegna selur þú þetta? 🔊 sagði litli prinsinn. 🔊
- Það er mikil tímasparnaður, sagði kaupmaðurinn. 🔊 Sérfræðingar hafa reiknað það úr. 🔊
Maður sparar fimmtíu og þrjár mínútur á viku. 🔊
- Og hvaða gera menn við þessar fimmtíu og þrjár mínútur? 🔊
- Menn gera með þær það sem þeim sýnist. 🔊
Ef ég, sagði litli prinsinn við sjálfan sig, hefði fimmtíu og þrjár mínútur aflögu mundi ég í rólegheitum finna mér lind …
🔊