Ó, litli prins! 🔊 Þannig hefi ég smám saman öðlast skilning á dapurlegu lífi þinu. 🔊 Lengi hafðir þú ekki haft annað til afþreyingar en blítt sólsetrið. 🔊 Mér vitnaðist sú nýjung á fjórða degi að morgni, þegar þú sagðir við mig:
- Mér finnst sólsetrið svo fallegt. 🔊 Förum og horfum á sólsetrið …
- Bíða þess að sólin setjist. 🔊
Þú virtist fyrst mjög undrandi, en síðan hlóstu að sjálfum þér. 🔊 Og þú sagðir:
- Ég held alltaf að ég se heima! 🔊
Það er einmitt. 🔊 Þegar hádegi er í Bandaríkjunum er sólin að setjast í Frakklandi. 🔊 Ef hægt væri að komast til Frakklands á mínútu myndi það duga til þess að ná sólsetrinu. 🔊
Því miður er Frakkland allt of langt í burtu. 🔊 En á litlu stjörnunni þinni nægði þér að draga til stólinn þinn um nokkur skref. 🔊 Og þú horfðir á kvöldhúmið hvenær sem þig langaði til …
- Einn daginn sá ég sólina setjast fjörutíu og þrisvar sinnum! 🔊
Og nokkru seinna bættirðu við:
- Þú skilur … þegar maður er svona dapur elskar maður sólsetrið …
- Og daginn sem þú sást það fjörutíu og þrisvar sinnum, þá varstu svona dapur? 🔊 En litli prins svaraði ekki. 🔊