← Hugmyndin um fílahjörðina kom litla prinsinum til að hlæja: - Það yrði að setja þá ofan á annan … 🔊
← Litli prinsinn setti mig aftur út af laginu: - Og þú heldur að blómin … - Nei, nei! 🔊
← Og þegar hann vökvaði blómið í síðasta sinn, og bjóst til að setja það undir hjálminn, fann hann löngun til þess að gráta: - Vertu sælt, sagði hann við blómið. 🔊
← - Ef ég á trefil, get ég sett hann um hálsinn og farið með hann. 🔊
← Litli prinsinn settist á stein og lyfti augum til himins: - Ég veit ekki, sagði hann, hvort stjörnurnar skína til þess að hver og einn geti fundið aftur stjörnuna sína. 🔊
← En hún ein er meira virði en þið allar af því að það er hún sem ég hefi vökvað, hún sem ég hefi sett undir hjálm, hún sem ég hefi skýlt með vindhlíf, hún sem ég hefi drepið af lirfurnar (nema tvær eða þrjár vegna fiðrildanna); af því að það er hún sem ég hefi heyrt kveina eða gorta, eða jafnvel stundum þegja; af því að hún er rósin mín. 🔊
← Og hann settist því að hann grét … Hann sagði enn: - Þú veist … blómið mitt … ég ber ábyrgð á því! 🔊
← Ég gleymdi að setja leðurólina á snoppuhandið sem ég bjó til fyrir litla prinsinn! 🔊