← Litli prinsinn settist á stein og lyfti augum til himins: - Ég veit ekki, sagði hann, hvort stjörnurnar skína til þess að hver og einn geti fundið aftur stjörnuna sína. 🔊
← Ef þú elskar blóm sem er á stjörnu þá er ljúft að horfa á himininn á nóttunni. 🔊
← - Úr því að ég á heima á einni þeirra, og úr því að ég hlæ á eina þeirra, þá verður það fyrir þig eins og alla stjörnurnar hlæi þegar þú horfir á himininn á kvöldin. 🔊
← Og stundum opnarðu gluggann, svona til gamans … Og vinir þínir undrast að sjá þig hlæja er þú horfir á himininn. 🔊
← Fyrir ykkur sem líka þykir vænt um litla prinsinn, eins og fyrir mig, er alheimurinn ekki samur ef kind sem við þekkjum ekki hefir einhvers staðar, enginn veit hvar, bitið rós eða ekki bitið rós … - Horfið á himininn. 🔊