13. KAFLI 🔊

Fjórði hnötturinn var hnöttur kaupsýslumannsins. 🔊 Maðurinn var svo önnun kafinn hann leit ekki einu sinni upp við komu litla prinsins. 🔊

- Góðan daginn, sagði hann síðari. 🔊 Það er dautt í vindlingnum þínum. 🔊

- Þrír og tveir eru fimm. 🔊 Fimm og sjö tólf. 🔊 Tólf og þrír fimmtán. 🔊 Góðan daginn. 🔊 Fimmtán og sjö tuttugu og tveir. 🔊 Tuttugu og tveir og sex tuttugu og átta. 🔊 Enginn tími til kveikja í. Tuttugu og sex og fimm eru þrjátíu og einn. 🔊 Ú-ú! 🔊 Það gerir þá fimm hundruð og eina milljón sex hundruð tuttugu og tvö þúsund sjö hundruð þrjátíu og einn. 🔊

- Fimm hundruð milljónir af hverju? 🔊

- Á? 🔊 Þú ert þarna enn? 🔊 Fimm hundruð og ein milljón afég veit ekki lengur af hverjuÉg hefi svo mikið gera! 🔊 Mér er alvara, ég er ekki grínast! 🔊 Tveir og fimm sjö

- Fimm hundruð og ein milljón af hverju? 🔊 endurtók litli prinsinn sem hafði aldrei á ævinni hætt við spurningu sem hann hafði einu sinni borið fram. 🔊

Kaupsýslumaðurinn leit upp. 🔊

- Í þau fimmtíu og fjögur ár sem ég hefi búið á þessum hnetti hefi ég ekki verið ónáðaður neins þrisvar sinnum. 🔊 Í fyrsta skipti fyrir tuttugu og tveimur árum og þá var það aldinbori sem hafði dottið guð vita hvaðan. 🔊 Hann gerði hræðilegan hávaða og ég gerði fjórar skekkjur í samanlagningu. 🔊 Í annað skipti var það fyrir ellefu árum, og þá var það gigtarkast. 🔊 Mig vantar hreyfingu. 🔊 Ég hefi ekki tíma til slæpast. 🔊 Ég er ekki grínast. 🔊 Og þriðja skiptiðnúna! 🔊 Hvar var ég staddur: fimm hundruð og ein milljón

- Fimm hundruð og ein milljón af hverju? 🔊

Kaupmaðurininn skildi hér var engin undankoma. 🔊

- Milljónir af þessum ögnum sem maður sér stundum í loftinu. 🔊

- Af flugum? 🔊

- Nei, nei, þessum ögnum sem glitra. 🔊

- Býflugum? 🔊

- Nei, þessum glóandi ögnum sem vekja draumóra hjá iðjuleysingjum. 🔊 En ég er alvörumaður. 🔊 Ég hefi ekki tíma til draumóra. 🔊

- Ó! 🔊 stjörnur. 🔊

- Það er einmitt. 🔊 Stjörnur. 🔊

- Og hvað gerir þú með fimm hundruð milljónir af stjörnum? 🔊

- Fimm hundruð og eina milljón sex hunðruð tuttugu og tvö þúsund sjö hundruð þrjátíu og eina. 🔊 Ég tek starf mitt alvarlega, og ég er nákvæmur. 🔊

- Og hvað gerirðu með stjörnurnar? 🔊

- Hvað geri ég með þér? 🔊

- . 🔊

- Ekkert. 🔊 Ég á þær. 🔊

- Áttu stjörnurnar? 🔊

- . 🔊

- En ég hefi þegar hitt konung sem

- Konungar eiga ekkert. 🔊 Þeir "ríkja". 🔊 Það er tvennt ólíkt. 🔊

- Og til hvers er þér eiga stjörnurnar? 🔊

- Til þess verða ríkur. 🔊

- Og til hvers er þér vera ríkur? 🔊

- Til þess ég geti keypt aðrar stjörnur ef einhver finnur þær. 🔊 hefir ekki ólikan hugsanagang og drykkjumaðurininn áðan, sagði litli prinsinn með sjálfan sér. 🔊

Samt bar hann enn fram spurningar:

- Hvernig er hægt eiga stjörnurnar? 🔊

- Hverjum tilheyra þær? 🔊 svaraði kaupsýslumaðurinn afundinn. 🔊

- Það veit ég ekki. 🔊 Engum. 🔊

- Þá á ég þær af því mér hefir fyrstum dottið það í hug. 🔊

- Og það nægir? 🔊

- Vissulega. 🔊 Þegar þú finnur gimstein sem enginn á, átt þú hann. 🔊 Þegar þú finnur eyju sem enginn á, átt þú hana. 🔊 Þegar þú finnur hugmynd fyrstur, færðu á henni einkaleyfi. 🔊 Þú átt hana. 🔊 Og ég á stjörnurnar af því enginn hefir nokkurn tíma á undan mér hugsað um eiga þær. 🔊

- Það er reyndar alveg rétt, sagði litli prinsinn. 🔊 Og hvað gerirðu við þær? 🔊

- Ég stjórna þeim. 🔊 Ég tel þær og tel, sagði kaupsýslumanaðurinn. 🔊 Það er erfitt. 🔊 En ég er alvörumaður. 🔊

En litli prinsinn var enn ekki ánægður. 🔊

- Ef ég á trefil, get ég sett hann um hálsinn og farið með hann. 🔊 Ef ég á blóm, get ég tínt blómið og farið með það. 🔊 En þú getur ekki tínt stjörnurnar! 🔊

- Nei, en ég get komið þeim fyrir í banka. 🔊

- Hvað er það? 🔊

- Ég skrifa stjörnufjöldann á pappírsblað og svo loka ég þetta blað niðri í skúffu. 🔊

- Og það er allt og sumt? 🔊

- Það er nóg! 🔊

Þetta er skemmtilegt, hugsaði litli prinsinn. 🔊 Það er nógu skáldlegt. 🔊 En það er ekki mikil alvara í því. 🔊

Litli prinsinn hafði mjög ólikar hugmyndir fullorðna fólkinu um hvað væri alvara. 🔊

- Ég, sagði hann enn, á blóm, sem ég vökva daglega. 🔊 Ég á þrjú eldfjöll sem ég hreinsa vikulega. 🔊 Því ég hreinsa líka það sem er kulnað. 🔊 Maður veit aldrei. 🔊 Það er til gagns fyrir eldfjöllin og það er til gagns fyrir blómið ég eigi þau. 🔊 En þú ert stjörnunum ekki til gagns

Kapusýslumaðurinn opnaði munnin, en fann ekkert til svara og litli prinsinn hvarf brott. 🔊

Fullorðið fólk er áreiðanlega alveg sértakt, sagði hann með sjálfum sér á leiðinni. 🔊