← Vilduð þér vera svo góðir að hugsa um mig … Það kom fát á litla prinsinn, en svo fór hann og sótti fulla garðkönnu af fersku vatni og vökvaði blómið. 🔊
← Og þegar hann vökvaði blómið í síðasta sinn, og bjóst til að setja það undir hjálminn, fann hann löngun til þess að gráta: - Vertu sælt, sagði hann við blómið. 🔊
← - Ég, sagði hann enn, á blóm, sem ég vökva daglega. 🔊
← En hún ein er meira virði en þið allar af því að það er hún sem ég hefi vökvað, hún sem ég hefi sett undir hjálm, hún sem ég hefi skýlt með vindhlíf, hún sem ég hefi drepið af lirfurnar (nema tvær eða þrjár vegna fiðrildanna); af því að það er hún sem ég hefi heyrt kveina eða gorta, eða jafnvel stundum þegja; af því að hún er rósin mín. 🔊