9. KAFLI 🔊

Ég hygg hann hafi notað sér ferðir farfugla til komast burt. 🔊 Morguninn sem hann fór kom hann reglu á allt á stjörnunni sinni. 🔊 Hann hreinsaði vendilega eldfjöllin sín, þau sem eldur var í. Það voru tvö fjöll með eldi. 🔊 Og það var mjög þægilegt til hita morgunverðinn. 🔊 Hann hafði einnig kulnað eldfjall. 🔊 En "maður veit aldrei" eins og hann sagði. 🔊 Hann hreinsaði því líka kulnaða eldfjallið. 🔊 Ef þau eru vel hreinsuð brenna þau hægt og reglulega, án gosa. 🔊 Eldfjallagos eru eins og eldur í reykháf. 🔊 Á jörðinni okkar erum við auðvitað allt of litlir til þess hreinsa eldfjöllin. 🔊 Þess vegna höfum við af þeim öll þessi leiðindi. 🔊

Litli prinsinn reif einnig upp síðustu baóbabb-sprotana dálítið dapur í bragði. 🔊 Hann hélt hann ætti aldrei eftir koma aftur. 🔊 En öll þessi kunnuglegu störf virtust honum einkar ljúf þennan morgun. 🔊 Og þegar hann vökvaði blómið í síðasta sinn, og bjóst til setja það undir hjálminn, fann hann löngun til þess gráta:

- Vertu sælt, sagði hann við blómið. 🔊

En það svaraði honum ekki. 🔊

- Vertu sælt, endurtók hann. 🔊

Blómið hóstaði. 🔊 En það var ekki vegna kvefsins. 🔊

- Ég hefi verið heimskt, sagði það við hann lokum. 🔊 Ég bið þig fyrirgefningar. 🔊 Reyndu vera hamingjusamur. 🔊

Hann var undrandi engar ávítur. 🔊 Hann stóð alveg utan við sig, með hjálminn í höndunum. 🔊

Hann skildi ekki þessa mildi og . 🔊

- , ég elska þig, sagði blómið. 🔊 Þú hefir ekki haft hugmynd um það og það er mér kenna. 🔊 Það skiptir engu. 🔊 En þú hefir verið sama blómið og ég. 🔊 Reyndu vera hamingjusamurLáttu hjálminn eiga sig. 🔊 Ég vil hann ekki lengur. 🔊

- En gusturinn

- Ég er ekki svo kvefað … Nætursvalinn mun gera mér gott. 🔊 Ég er blóm. 🔊

- En dýrin

- Ég verð þola tvær eða þrjár lirfur ef ég vil kynnast fiðrildunum. 🔊 Þau kváðu vera svo fögur. 🔊 Hver myndi annars heimsækja mig? 🔊 Þú verður svo langt burtu. 🔊 Og stóru dýrin, ég er ekkert hrætt við þau. 🔊 Ég hefi klærnar mínar. 🔊

Og það sýndi barnalega þyrnana sína fjóra. 🔊 Síðan bætti það við:

- Vertu ekki slóra þetta, það er alveg óþolandi. 🔊 Þú hefir ákveðið fara. 🔊 Farðu! 🔊

Því það vildi ekki ég sæi það gráta. 🔊 Það var stærilátt blóm. 🔊