← Einn daginn, til dæmis, er það var að tala um þyrnana sína fjóra, hafði það sagt við litla prinsinn: - Þau mega koma, tígrisdýrin, með klærnar sínar! 🔊
← Og það sýndi barnalega þyrnana sína fjóra. 🔊
← Ef hann hefði haft það sjálfur hefði hann getað horft, ekki fjörutíu og fjórum sinnum, heldur sjötíu og tvisvar eða jafnvel hundrað eða tvö hundruð sinnum á sólestrið sama daginn, án þess að þurfa nokkurn tíma að draga til stólinn sinn! 🔊
← - Í þau fimmtíu og fjögur ár sem ég hefi búið á þessum hnetti hefi ég ekki verið ónáðaður neins þrisvar sinnum. 🔊
← Hann gerði hræðilegan hávaða og ég gerði fjórar skekkjur í samanlagningu. 🔊
← Hitt þorði litli prinsinn ekki að játa, að hann sá eftir þessari blessaðri stjörnu mest vegna fjórtán hundruð og fjörutíu sólestra á hverjum tuttugu og fjórum stundum! 🔊
← - Blómið mitt er skammætt, hugsaði litli prinsinn, og það hefir aðeins fjóra þyrna til þess að verja sig fyrir heiminum! 🔊
← Til þess að gefa ykkur hugmynd um stærð jarðarinnar skal ég segja ykkur að fyrir daga rafmagnsins þurfti hafa þar, í heimsálfunum fimm, heilan her eða fjögur hundruð sextíu og tvö þúsund fimm hundruð og ellefu menn til að annast götuljós. 🔊
← Klukkan fjögur verð ég þegar orðinn órór og kviðinn. 🔊
← Það hefir fjóra örsmáa þyrna til þess að vernda sig gegn heiminum … Ég settist af því að ég gat ekki lengur staðið á fótunum. 🔊