undir - adverb preposition
← - Það er allt komið undir skipulagi, sagði litli prinsinn við mig síðar. 🔊
← Það verður að gera sér það að ófrávíkjanlegri skyldu að rífa upp baóbabb-trén undir eins og menn greina þau frá rósarunnunum, sem þau líkjast mikið á meðan þau eru ung. 🔊
← Litli prinsinn fylgdist með því er geysistór blómhnappurinn bjó um sig og skynjaði glöggt að brátt yrði hann vitni að undursamlegri sýn, en blómið í sínu græna skilti ætlaði aldrei að hafa lokið því að búa sig undir að verða fallegt. 🔊
← Þetta blóm er mjög margbrotið …" - Á kvöldin skuluð þér setja mig undir hjálm. 🔊
← Og þegar hann vökvaði blómið í síðasta sinn, og bjóst til að setja það undir hjálminn, fann hann löngun til þess að gráta: - Vertu sælt, sagði hann við blómið. 🔊
← - Ég er hér, sagði röddin, undir eplatrénu … - Hver ert þú? 🔊
← En hún ein er meira virði en þið allar af því að það er hún sem ég hefi vökvað, hún sem ég hefi sett undir hjálm, hún sem ég hefi skýlt með vindhlíf, hún sem ég hefi drepið af lirfurnar (nema tvær eða þrjár vegna fiðrildanna); af því að það er hún sem ég hefi heyrt kveina eða gorta, eða jafnvel stundum þegja; af því að hún er rósin mín. 🔊
← Það var til orðið við gönguna undir skini stjarnanna, við söng vindunnar, við áreynslu handleggjanna. 🔊
← Litli prinsinn byrgir blómið sitt á hverri nóttu undir glerhjálmi. 🔊
← Ef það kemur fyrir ykkur að fara þar um, þá flýtið ykkur ekki, í öllum bænum hinkrið svolítið við rétt undir stjörnunni! 🔊