Á hverjum degi lærði ég eitthvað um stjörnuna, brottförina, ferðalagið. 🔊 Þetta kom smám saman, eftir því sem það varð á vegi hugans. 🔊 Þannig var það á þriðja degi að ég kynntist sorgarsögunni um baóbabb-trén. 🔊
Enn í þetta sinn var það kindinni að þakka því að litli prinsinn spurði mig allt i einu, eins og hann væri gripinn alvarlegum efa:
- Er það ekki satt að kindur bíti kvisti? 🔊
- Ó! 🔊 það þykir mér vænt um. 🔊
Ég skildi ekki hvers vegna það væri svo mikilvægt að kindur bitu kvisti. 🔊 En litli prinsinn bætti við:
- Þær bíta þá líka baóbabb-trén? 🔊
Ég benti litla prinsinum á að baóbabb-trén væru ekki runnar heldur tré á stærð við kirkjur og jafnvel þótt hann tæki með sér heila fílahjörð myndi sú hjörð ekki vinna á einu baóbabb-tré. 🔊
Hugmyndin um fílahjörðina kom litla prinsinum til að hlæja:
- Það yrði að setja þá ofan á annan …
🔊
- Baóbabb-trén byrja á því að vera lítil áður en þau verða stór. 🔊
- Það er rétt. 🔊 En hvers vegna viltu að kindurnar éti litlu baóbabb-trén? 🔊
Hann svaraði: "Já, skilurðu það ekki?" 🔊 eins og það væri einsætt mál. 🔊 Og ég þurfti að taka á allri minni skynsemi til þess að skilja þetta vandamál aleinn. 🔊
Á stjörnu litla prinsins voru í rauninni eins og á öllum stjörnum, góð grös og vond grös. 🔊 Þess vegna einnig góð fræ af góðum grösum og vond fræ af vondum grösum. 🔊 En fræin eru ósýnileg. 🔊 Þau sofa í fylgsnum moldarinnar þangað til eitt þeirra tekur upp á því að vakna. 🔊 Þá teygir það úr sér og otar fyrst feimnislega í átt til ljóssins yndislegum, litlum, meinlausum sprota. 🔊 Ef þetta er hreðku- eða rósarsproti má láta hann vaxa eins og hann vill. 🔊 En ef þetta er illgresi verður að reyta plöntuna jafnskjótt og hún þekkist. 🔊 Og það voru hræðileg fræ á stjörnu litla prinsins … það voru baóbabb-fræ. 🔊 Það var allt morandi af þeim í jarðveginum. 🔊 Og það er þannig með baóbabb-tré að ef þau fá að vaxa í friði er ómögulegt að uppræta þau. 🔊 Baóbabb-trén fylla allan hnöttinn. 🔊 Þau læsa rótunum um hann. 🔊 Og ef hnötturinn er of lítill og ef baóbabb-trén eru of mörg sprengja þau hann. 🔊
- Það er allt komið undir skipulagi, sagði litli prinsinn við mig síðar. 🔊 Þegar maður hefir lokið við að snyrta sig á morgnana verður að snyrta stjörnuna rækilega. 🔊 Það verður að gera sér það að ófrávíkjanlegri skyldu að rífa upp baóbabb-trén undir eins og menn greina þau frá rósarunnunum, sem þau líkjast mikið á meðan þau eru ung. 🔊 Það er mjög leiðinlegt verk, en mjög auðvelt. 🔊
Og einn daginn ráðlagði hann mér að leggja mig fram við að gera fallega mynd til þess að koma þessu vel í huga barnanna á jörðinni. 🔊 "Ef þau ferðast einhvern tíma," sagði hann, "getur það orðið þeim að gagni. 🔊 Það er stundum meinlaust að fresta verki þangað til seinna. 🔊 En þegar um er að ræða baóbabb-tré er það voðinn sjálfur. 🔊 Ég þekkti stjörnu þar sem bjó letingi. 🔊 Hann hirti ekki um þrjá runna …"
Og eftir vísbendingu litla prinsins teiknaði ég þessa stjörnu. 🔊 Mér er lítið gefið um að predika. 🔊 En voðinn sem stafar af baóböbbunum er svo lítt kunnur og hætturnar fyrir þann sem villist á smástirni svo miklar að í þetta skipti læt ég af hæverskunni og segi: "Börn! 🔊 Varið ykkur á baóböbbunum!" 🔊 Það er til þess að vara vini mína við hættu sem þeir hafa lengið verið í, eins og ég sjálfur án þess að vita af því, að ég hefi vandað þessa mynd svo mjög. 🔊 Lexían sem ég vildi kenna er þess virði. 🔊 Þið munuð ef til vill spyrja: "Hvers vegna eru ekki í þessari bók aðrar myndir eins stórkostlegar og myndin af baóbabb-trjánum? 🔊 Svarið er einfalt: Ég hefi reynt, en ekki tekist. 🔊 Þegar ég bjó til baóbabb-trén var ég gagntekinn af tilfinningu um knýjandi nauðsyn. 🔊