← Enn í þetta sinn var það kindinni að þakka því að litli prinsinn spurði mig allt i einu, eins og hann væri gripinn alvarlegum efa: - Er það ekki satt að kindur bíti kvisti? 🔊
← Ég skildi ekki hvers vegna það væri svo mikilvægt að kindur bitu kvisti. 🔊
← Hann spurði mig hvatskeytlega og formálalaust, eins og það væri niðurstaða vandamáls sem hann hefði lengi hugleitt í kyrrþey: - Kind sem bítur kvist, bítur hún líka blóm? 🔊