← Það rann óðara upp fyrir mér glæta í því dularmyrkri sem var um návist hans og ég spurði hvatskeytlega: - Þú kemur þá af annarri stjörnu? 🔊
← Ég benti litla prinsinum á að baóbabb-trén væru ekki runnar heldur tré á stærð við kirkjur og jafnvel þótt hann tæki með sér heila fílahjörð myndi sú hjörð ekki vinna á einu baóbabb-tré. 🔊
← - Ó, ég hefi þegar séð það, sagði prinsinn, sem hallaði sér til þess að renna augunum yfir hina hlið hnattarins. 🔊
← Og hann renndi augunum í kringum sig, yfir hnött landfræðingsins. 🔊
← Ég þrýsti honum í örmum mér eins og litlu barni og þó virtist mér eins og hann væri að renna beint niður í hyldýpi án þess að ég gæti nokkuð að gert … Augnaráð hans var alvarlegt og fjarrænt: - Hér er ég með kindina þína, og kassann handa kindinni. 🔊