← Og ég hreytti út úr mér: - Þetta er kassinn. 🔊
← Hann þagði íhugull og sagði síðan: - Það er gott við þennan kassa sem þú hefir gefið mér að hann getur verið húsið hennar á nóttinni. 🔊
← En því miður get ég ekki séð kind gegnum kassa. 🔊
← Ég þrýsti honum í örmum mér eins og litlu barni og þó virtist mér eins og hann væri að renna beint niður í hyldýpi án þess að ég gæti nokkuð að gert … Augnaráð hans var alvarlegt og fjarrænt: - Hér er ég með kindina þína, og kassann handa kindinni. 🔊