Þannig hafði ég fengið að vita annað mikilvægt atriði. 🔊 Það var að stjarnan sem hann var frá var varla stærri en kös! 🔊
Slíkt gat ekki valdið mér mikilli undran. 🔊 Ég vissi vel að auk stóru reikistjarnanna, Jarðarinnar, Júpíters, Mars og Venusar, sem menn höfðu gefið nöfn, voru hundruð annarra stjarna, sumar svo litlar að erfitt væri að greina þær í sjónauka. 🔊 Þegar stjörnufræðingur uppgötvar eina slíka auðkennir hann hana með tölu í stað nafns. 🔊 Hann kallar hana t.d. 🔊 "smástirnið 3251". 🔊
Ég hefi ríka ástæðu til að ætla að stjarnan sem litli prinsinn kom frá sé smástirnið B 612. 🔊 Þetta smástirni hefir aðeins sést einu sinni í sjónauka, árið 1909, og það var tyrkneskur stjörnufræðingur sem kom auga á það. 🔊
Hann gerði rækilega grein fyrir uppgötvun sinni á alþjóðlegu stjarnfræðiþingi. 🔊 En enginn trúði honum vegna klæðnaðar hans. 🔊 Fullorðið fólk er þannig. 🔊
Til allrar blessunar fyrir orðstír smástirnisins B 612 fyrirskipaði tyrkneskur einvaldi þjóð sinni, að viðlagðri dauðarefsingu, að klæðast á vestrænan hátt. 🔊 Stjörnufræðingurinn endurtók greinargerð sína 1920 kjólklæddur. 🔊 Og í þetta sinn voru allir á hans máli. 🔊
Það er vegna fullorðna fólksins að ég hefi sagt svo greinilega frá smástirninu B 612 og gefið upp tölunafn þess. 🔊 Fullorðið fólk elskur tölur. 🔊 Þegar þú talar við það um nýjan vin spyr það þig aldrei um það sem mestu varðar. 🔊 Það segir aldrei: "Hvernig hljómar rödd hans? 🔊 Hvaða leiki vill hann helst? 🔊 Safnar hann fiðrildum?" 🔊 Það spyr: "Hvað er hann gamall? 🔊 Hvað á hann manga bræður? 🔊 Hvað er hann þungur? 🔊 Hvaða tekjur hefir faðir hans?" 🔊 Þá fyrst heldur það að það þekki hann. 🔊 Ef þú segir við fullorðið fólk: "Ég sá fallegt hús úr rósrauðum tígulsteinum, með blóm i gluggum og dúfur á þakinu …" tekst því ekki að ímynda sér slíkt hús. 🔊
Þú verður að segja við það: "Ég sá hús sem kostaði milljón." 🔊 Þá hrópar það upp: "En hvað það er fallegt!" 🔊
Og ef þú segir við það: "Sönnum þess að litli prinsinn hefir verið til er að hann var yndislegur, að hann hló og vildi kind. 🔊 Þegar maður vill fá kind sannar það að maður er til" þá mun það yppta öxlum og kalla þig barn. 🔊 En ef þú segir við það: "Stjarnan sem hann kom frá er smástirnið B 612" mun það sannfærast og ekki ónáða þig með neinum spurningum. 🔊 Fullorðið fólk er þannig. 🔊 Okkur má gremjast við það. 🔊 Börn eiga að vera umburðarlynd við fullorðið fólk. 🔊
En við sem skiljum lífið, við kærum okkur auðvitað kollótt um tölur! 🔊 Ég hefði viljað byrja þessa sögu eins og ævintýrin segja: "Það var einu sinni lítill prins sem bjó á stjörnu sem var naumast stærri en hann, og hann vantaði vin …" Fyrir þá sem skilja lífið hefði þetta orðið miklu sennilegra. 🔊
Því að ég vil ekki að menn lesi bókina mína með léttúð. 🔊 Ég finn til svo mikillar hryggðar að segja frá þessum minningum. 🔊 Það eru þegar liðin sex ár síðan vinur minn fór með kindina sína. 🔊 Það er til þess að gleyma honum ekki að ég reyni að lýsa honum hér. 🔊 Það er dapurlegt að gleyma vini. 🔊 Það hafa ekki allir átt vin. 🔊 Og ég get orðið eins og fullorðna fólkið sem hefur aðeins áhuga á tölum. 🔊 Það er þess vegna að ég hefi keypt litakassa og blýanta. 🔊 Það er erfitt að fara að teikna á mínum aldri, þegar maður hefur aldrei reynt við annað en kyrkislöngur síðan sex ára gamall. 🔊 En ég er ekki alveg viss um að mér takist það. 🔊 Ein myndin dugir, önnur verður ólík. 🔊 Mér skjátlast líka ofurlítið með stærðina. 🔊 Á einni er litli prinsinn of stór, á annarri of lítill. 🔊
Ég er líka í vafa um litinn á búningum. 🔊 Þá þreifa ég fyrir mér til og frá, eftir því sem ég get. 🔊 Loks mun mér skjátlast í veigameiri atriðum. 🔊 En það verður að fyrirgefa mér. 🔊 Vinur minn gaf mér aldrei neinar skýringar. 🔊 Hann hugði mig ef til vill líkan sér. 🔊 En því miður get ég ekki séð kind gegnum kassa. 🔊 Ég er ef til vill svolítið eins og fullorðna fólkið. 🔊 Ég hlýt að hafa elst. 🔊