← Þar eru eitt hundruð og ellefu konungar (og gleymum við auðvitað ekki svertingjakonungum), sjö þúsund landfræðingar, níu hundruð þúsund kaupsýslumenn, sjö og hálfa milljón drykkjumenn, þrjú hundruð og ellefu milljón monthanar, alls kringum tveir milljarðar fullorðinna manna. 🔊
← Ef þessir tveir milljarðar íbúa sem byggja jörðina stæðu dálítið þétt saman, eins og á fjöldafundi, kæmust þeir auðveldlega fyrir á torgi sem væri tuttugu mílur á hvern veg. 🔊