← Og þar sem hann var dálítið hnugginn við minninguna um litla hnöttinn sem hann hafði skilið við herti hann upp að biðja konung bónar: - Mig langaði til að sjá sólsetur … Gerið mér þá ánægju … skipið sólinni að setjast … - Ef ég skipaði hershöfðingja að flögra blóm af blóm líkt og fiðrildi, eða semja harmleik eða breyta sér í sjófugl, og ef hershöfðinginn framkvæmdi ekki skipunina, hvers væri sökin, hans eða mín? 🔊